15.7.2019 | 18:03
Eftirköstin.
Jæja, það kom í ljós þegar ég kom heim að það var brot í sköflungi og því ekki skrýtið að ég fyndi til. Trúlega hefur komið sprunga í hann í pallaleikfimi í apríl, sem opnast svo eftir tæpar þrjár vikur á göngu en þá fór ég að finna mikið til.
Ég sleppti dögum vegna þessa, leiðinlegt en það var ekkert í stöðunni annað á þessum tíma. En þrátt fyrir allt er ég ótrúlega glöð að hafa getað gengið síðasta daginn á þrjóskunni. Nú er ég búin að vera með hækjur frá 10. júlí og vonandi losna ég við þær 24. júlí þegar ég hitti lækni aftur og fer í myndatöku.
Sumarið verður eitthvað öðruvísi en ég reiknaði með, en vonandi á ég eftir að jafna mig og getað haldið áfram að njóta gönguferða.
Ferðalög | Breytt 15.1.2020 kl. 11:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)