2.5.2019 | 18:36
Ólafsvegurinn frá Svíþjóð til Noregs, 24. maí - ?? 2019.
Jæja, enn er ég að koma með nýtt pílagrímablogg og þetta er það sjötta í röðinni.
Nú mun ég halda til Selanger í Svíþjóð þann 24. maí nk. og ganga þaðan í vesturátt til Þrándheims í Noregi, svokallaða Olavsleið, en leiðin sem ég gekk 2017 frá Osló til Þrándheims er kölluð Guðbrandsdalsleiðin.
Báðar eru þessar leiðir tileinkaðar Ólafi helga Haraldssyni konungi, sem fór frá Svíþjóð með her sinn 1030 áleiðis til Noregs og ætlaði að endurheimta konungsríki sitt og koma á kristni en hann var drepinn í stríði við Stiklastad.
Þetta er um 580 km. leið og reikna ég með að vera einn mánuð að þessu sinni ef allt gengur vel og "ferðafélaginn minn ósýnilegi" sem alltaf er með mér og lítur eftir mér gefur mér heilsu til þess að ljúka göngunni.
Ég fer með honum Ger frá Hollandi sem gekk með mér frá Osló til Þrándheims 2017. Já!!! Hann hefur fengið leyfi frá Theu konunni sinni til þess að fara í þessa göngu með konunni frá Íslandi.
Leiðin okkar mun liggja frá strönd til strandar, um skóga, meðfram ám og vonandi líka yfir einhverjar, um sveitir, upp fjöll og niður í dali, um þorp og kaupstaði og gististaðir eru margir og örugglega misjafnir.
Ég er lánsöm að geta gert það sem mér finnst skemmtilegt, fá að vakna hvern dag, láta eftir mér að fara fótgangandi milli staða, upplifa náttúru, menningu og mannlíf á hinum ýmsu stöðum og leggjast til hvílu í lok dags og þakka fyrir daginn.
Ef þið sem lesið þessar línur frá mér viljið fylgjast með mér, þá þætti mér vænt um það. Og það myndi gleðja þessa er þetta skrifar, ef þið létuð mig vita af ykkur af og til hér í athugasemdum neðan við færslurnar.
Ég vonast til þess að geta sett inn færslur hér í lok hvers göngudags ef ég verð ekki alveg búin á því. En ef ekki þá kemur færsla einhvern annan dag.
Hugsið hlýlega til mín elskurnar mínar, ég hugsa heim á þessari göngu eins og á hinum sem ég hef farið áður.
Það heldur mér gangandi þegar gangan verður pínu erfið að vita af ykkur heima að fylgjast með og það yljar.
"Dag í senn, eitt andartak í einu".
Þessi orð fylgja mér núna eins og áður og hafa reynst mér mikið vel. Þar til næst, hafið það sem best.
Rúna pílagrími á leið í sína sjöttu pílagrímagöngu.
Athugasemdir
Þú talar um "pílagrímsferð", mér verður því spurn um hvað sé áform þitt ... hvaða leið ert þú að fara?
Hefurðu gengið "konungsleiðina" í Svíþjóð? Sjálfur hef ég dreymt um að fara þessa leið í 30 ár ... en ekki orðið að því enn.
Örn Einar Hansen, 2.5.2019 kl. 19:17
Sæll Bjarne Örn.
Ég ætla að ganga leiðina sem Ólafur konungur mun hafa farið á leið sinni frá Svíþjóð til Noregs 1030. Þessi leið hefur verið gengin í mörg hundruð ár af fólki sem lagði á sig að ganga Ólafsveginn svokallaða og og hefur verið kölluð pílagrímaleið.
Það eru pílagrímaskrifstofur í ýmsum löndum og þar er hægt að fá margar og góðar upplýsingar.
Ég gekk fyrir tveimur árum aðra leið sem er líka kennd við Ólaf konung og hún liggur frá Osló til Þrándheims. Ég vona að þetta svari einhverju fyrir þig.
Torfhildur R Gunnarsdóttir, 3.5.2019 kl. 19:47
þetta verður enn ein rósin í hnappagatið mamma mín - þú ert einstök fyrirmynd. Gangi þér allt vel og ég hlakka til að fylgjast þeð. Guð fylgi þér hvert spor. Við elskum þig
Særún (IP-tala skráð) 23.5.2019 kl. 18:45
Gangi þér ætíð sem best elskuleg. Það er ómetanlegt (fyrir mig alla vega) að fá að fylgjast með þér, nú sem fyrr. Góðar kveðjur, Birna
Birna G. Konráðsdóttir (IP-tala skráð) 24.5.2019 kl. 08:25
Gangi þér vel elsku Rúna mín
Regïna Jóna Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 25.5.2019 kl. 00:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning