20.5.2019 | 14:07
Það styttist óðum!
Nú styttist þetta en í fyrramálið mun ég fljúga til Stokkhólms og ekki laust við að það sé smá spenningur/kvíðahnútur, en þetta verður allt í lagi þegar á hólminn er komið.
Ég er búin að vigta það sem ég verð með á bakinu og það eru rétt um 8. kg. Eitthvað mun bætast við þá þyngd þegar ég verð búin að nesta mig upp og ekki má gleyma vatnsflöskunni góðu. Ég vona bara að þetta verði í nokkuð góðu lagi með þyngdina - það má öllu venjast.
Við erum búin að bóka gistingu fyrstu þrjá dagana og þannig mun það trúlega verða áfram, því okkur var sagt að best væri að bóka gistingu tvo til þrjá daga fram í tímann, svo að við ættum öruggan svefnstað.
Fyrir einhverjum dögum var snjór víða á þessari leið, en síðustu fréttir eru að nú sé sól og sumar og allur snjór farinn.
Já, ferðafélaginn minn sem ég á stundir með í einverunni hugsar alltaf um mig, ekki nein "feilspor" þar og gott að geta átt spjall við hann út í víðáttuna.
Jæja, þessi færsla verður látin duga þar til ég er komin í Svíaríkið og kemst í samband við net eða ef mér leiðist uppi á flugvelli, þá set ég kannski inn smá færslu, sjáum til.
Hlakka til að "sjá ykkur" hér.
"Hver vegur að heiman - er vegurinn heim".
kærleikskveðja
Konan á leið í enn eitt ævintýrið.
Bloggar | Breytt 14.1.2020 kl. 14:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)